Fyrirtækið Parlogis h/f sér um lagerhald og dreifingu á öllum vörum E. Bridde ehf.
Í dag geta viðskiptavinir E. Bridde ehf gert pöntun á netinu sem á margan hátt gerir allt ferli pöntunar auðveldara og öruggara.
Í pöntuninni þarf að skrá í viðkomandi reiti vörunúmer og magn. Með því að slá á "SENDA" takkann fer viðkomandi pöntun til þjónustufulltrúa hjá Parlogis h/f sem gengur frá pöntun til afgreiðslu.
Allar persónu-upplýsingar (nafn/fyrirtæki,heimilifang o.fl) er hægt að vista þegar fyrsta pöntun er gerð og eftir það þarf einungis að skrá inn vörur. Til að vista upplýsingarnar þarf að haka við í reitinn "vista síðu". Upplýsingarnar eru þá geymdar í köku sem vafrinn þinn vistar inn á tölvuna þína. Ef vafrinn þinn er ekki með kveikt á kökum en þig langar að vista síðuna, farðu þá á þessa slóð.
E.Bridde ehf býður viðskiptavinum upp á 10 daga skilafrest miðað við dagsetningu reiknings. Skilagjald samkvæmt gjaldskrá Parlogis h/f er kr.250 á pr. línu.
Ef endursending á að vera tekin gild þarf að fylgja endursendingarformi sem Parlogis h/f hefur útbúið. Hægt er að nálgast formið neðst á þessari síðu.



